16.10.2007 14:20:14 / solveig

Afmælisskvíss<3

       

Hún á afmæli í dag

Hún á afmæli í dag

Hún á afmæli hún

RANNVEIG <3

Hún á afmæli í dag!

Já skvísan er bara orðin 18 ára sjálfráða gella!

 

Elskum þig í tætlur;**

Eigðu góðan dag og enn og aftur takk fyrir æðislegt afmælispartý á föstudaginn! Myndir væntanlegar;)

 

Hvað segiði svo um að byrja að blogga aftur stelpur?


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 21:18:44 / soffia

Blogg?

Blogg ?

Til hvers ?

Komið með ástæðu.

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.05.2007 17:30:33 / rannveig

Mývatn

Loksins, loksins...þá er maður kominn í Mývatnssveitina góðu, lentum hér á mánudags eftirmiðdag. Í för með mér var Helgi en svo í samfloti var hún Sólveig. Og auðvitað var strax skellt sér í sveitagallann og beinustu leið í fjárhúsin, og eins og búast má við voru þar gamlar og feitar rollur og sæt og lítil lömb. Ég er meira að segja búin að eignast vin þar, hann heitir Botni, ofur sætur skoh! :P Botni gefur mér félagsskap og ég honum mjólk, svona bíttumst við á þessa dagana..hehe! Það er nefnilega mál með vexti að hann Helgi minn og Einar ákváðu að skilja mig "eina" eftir í sveitinni þar sem þeir drengir komust í landsliðið í handbolta, u-17 og u-19. Stolt af mínum strákum!:D En þar af leiðandi sit ég eftir hérna næstum ein, hef reyndar Sólveigu og Soffíu, en Sólveig fer suður á morgun og hún Soffía er nú alltaf voða upptekin eitthvað:) En við sjáum nú til með það...

Annars byrjaði sumarið eins og flest önnur sumur, nema án fyllerísins. Ég byrjaði í nýrri vinnu, og í þetta skiptið á Hótel Seli á Mývatni. Vinn þar sem þjónustustúlka, en í augnarblikinu er ég uppþvotta og afgreiðslupía þar sem enn vantar starfsmenn. En jújú það er fínt..:) Er reyndar að vinna mikið meira en ég ætlaði mér þeas 7 daga og 2 í frí, staðinn fyrir 6 daga og 3 í frí, en jújú það reddast vonandi...verð bara að vera ofurdugleg:D

Svo í næstu viku ætla ég að fljúga heim og fá þessar einkunnir og vonandi verslunarprófskírteini og stoppa þangað til á föstudag...gaman að þessu!

Staðreyndir í Mývatnssveit:

 

 

  • Í maí er enn vetur hér, því við erum víst mikiið hærra yfir sjávarmáli en aðrir! En svo fáum við líka helmingi betra sumar!:D
  • Allt fólkið hér lyktar af sveitafýlu, skondið:P
  • Á vatninu býr svartur svanur, merkilegt nokk!
  • Það er "þari" í vatninu sem heitir kúluskítur!
  • Á sumrin fyllist sveitin af allskyns túristum..
  • Hér fljúga síli upp úr fiskabúrum...
  • Lónið er aðal menningamiðstöðin
  • Og rjóðrið aðal djammstaðurinn:P....mætti kannski bæta Gamla bænum við..
  • Hér borðar fólk lambakjöt og silung meira en nokkuð annað..
  • Fólkið hérna er mjög skondið, en þó skemmtilegt á köflum...hehe
  • En þrátt fyrir allt er rosa gott að vera hér:)

En jæja ekki meira af mér í bili...

Skora á samstarfsfélaga minna í þessari síðu og standa sig nú og blogga!;)

Rannveig Sveitastelpa

Sakna ykkar:*


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 22:22:35 / soffia

bloggedíblogg

Bonjour

Það er ýmislegt sem maður leyfir sér að gera þegar maður er í prófum, þá til dæmis að blogga! Og auðvitað að gera allt annað heldur en að læra!

Á morgun er fimmta prófið í Verzló og þar af leiðandi næst síðasta prófið! Á föstudaginn er svo það síðasta og þá er planið að vinna smá og slappa af því á laugardaginn á að mér skilst að taka heljarinnar júróvísíon djamm og er á sama tíma að öllum líkindum síðasta djammið næstu 3 mánuðina hérna á suðurlandinu því við erum allar á leiðinni norður í Mývatnssveit á sunnudaginn.

Kaggarnir okkar, VW Golf, VW Bora og Renault Megane-inn verða allir með í för ásamt því að hún Þorgerður verslóskvísa ætlar að fá að sitja í með mér í Golfinum til Akureyrar. Verst að maður þarf að keyra sjálfur því að sjálfsögðu væri maður kominn með bjór í hönd á leiðinni ef annað væri í boði. En nægur er tíminn fyrir bjórdrykkju og fylleríi en þetta sumar skal vera toppað af því síðasta!

Stelpur, og núna verðið þið að standa ykkur betur og taka Soffíu til fyrirmyndar! Ég treysti á ykkur! ;)

En um leið og maður kemur norður mun maður henda sér í vinnunna og reyna að vinna eins mikið í maímánuðinum og maður getur því þá eru allir MA-hommarnir og VMA-tussurnar ennþá í prófum og lítið að gera í sveitinni án þeirra.

En jæja, Á Bientöt ;*

 


-Soffía lata!


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 22:27:01 / rannveig

Nýjar myndir

Komnar myndir af Peysufatadegi Verzló
Endalaus skemmtun og endalaust gaman!

 

http://community.webshots.com/user/villingarnir10 

Enjoy!

Annars er lítið annað að frétta nema það er allt brjálað í prófum og verður það næstu 2 vikurnar þannig það er eins gott að fara að standa sig!
Það hefur nú líka ansi margt gerst síðustu daga, ég fór auðvitað til Florída þarna um daginn og svo í seinustu viku var peysufatadagurinn haldinn hátíðlega...
Og svo eftir tæpar 2 vikur verð ég komin í mývatnsveitna, til litlu kindnanna og á fullu í vinnunni auðvitað, gaman að þessu:)

kv. Rannveig

Vá hvað ég sakna þessarar stundar
Við skvísur í tvítugsafmæli hjá Jóhönnu okkar
Góður hópur, glæsilega klædd


 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 03:32:21 / soffia

blogg

Liðnir eru dagar, vikur og mánuðir.

Vinir og kunningjar bíða óþreygjufullir eftir nýrri færslu, en ekkert gerist!

Hvað er í gangi með okkur stelpur ?

Þessi síða okkur er ekki alveg að gera sig þessa dagana og við höfum engar afsakanir fyrir því að hafa ekki bloggað.
Sittlítið hefur þó gerst síðan síðast, en Rannveig kom heim brún og sæt frá Orlando eftir páskafríið en sjálf fór ég norður í páskafríinu og eyddi þar tíma með góðu fólki :) Sólveig var hinsvegar bara í sælunni á Selfossi á meðan.

Helgina eftir páskafríið skellti ég mér svo norður til Akureyrar ásamt Sólveigu og vinkonum hennar á Söngkeppni framhaldsskólanna. Helgin hjá mér var í heldur þurrum kannti en ég skemmti mér þó vel. Sigrún Vala stóð sig frábærlega í keppninni og á endalaust hrós skilið fyrir flutninginn.

Annars hefur maður verið að gera fátt annað en að vera með skólaleiða og að reyna að vinna sér inn einhverja peninga. Helgin þessi er þó búin að vera ágæt, action í vinnunni og svo tókum ég og Rannveig svona agalega skemmtilega á því á föstudaginn. Mæli með fleiri þannig átökum á næstunni!

En já ég held að þessi örfáu orð verði að fá að duga í bili, ég er að reyna að setja saman portofolio í ensku sem er ekki alveg að takast, svo er klukkann ekki nema hálf fjögur og ég þarf að vakna eftir svona 4 tíma.

Jaaaaabæ.

Kv. Soffía flugíkorni alltaf á riðlings ?


» 6 hafa sagt sína skoðun

01.04.2007 09:56:16 / rannveig

Orlando á eftir!

Jæja núna eftir nokkra tíma verð ég sitjandi útí Leifsstöð sötrandi bjór og bíða eftir fluginu mínu til Orlando. Já, það er sko loksins komið að því eftir 8 mánaða bið:D

Allt reddí, eða það vona ég allavega og brottför frá Selfossi kl. 11:00, Eyrún Erla er líklegast á leiðinni hingað en hún ætlar að fá að fljóta með okkur í bæinn, svo er ferðinni heitið til Bergrúnar og þar með er síðasti ferðabílfélaginn kominn..en við eigum eftir að deila bíl næstu 10 dagana...og jújú Bergrún verður víst driverinn:)

 En eftir sólarhring verð ég líklegast að sóla mig á Florída, góð tilhugsun?

En ég kveð að sinni...

 Rannveig

Florídafari

 

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 09:15:16 / solveig

Helgin ;)

Sólveig skrifar

 

Kominn tími á blogg? ...já ég held það :P

Allvega, helgin var frábær í alla staði ;)

Það var skellt sér í partý í Þorlákshöfn á föstudagskvelið en það var ekki stoppað mjög lengi, rúnturinn tekinn á Selfossi og svo gisti ég hjá Söndru;*

Á laugardaginn var skellt sér á ball í Þingborg þar sem að Stuðlabandið lék fyrir dansi. Áður en það var haldið á ball tókum við okkur stelpurnar til heima hjá Söndru og fórum í pottinn og sonna ;) Myndir koma af því fljótlega, allavega þær sem eru nethæfar ;) Síðan komu Haffi hveró, Jói og Elli að sækja okkur og við brunuðum á ball.

Ballið var bara skemmtilegt og var dansað allt kvöldið og tekið nokkra hringi í kringum húsið :P

Á sunnudaginn var síðan bara legið í leti:)

 

En núna er farið að styttast í Söngvakeppni framhaldsskólanna og verður hún haldinn þann 14. apríl á Akureyri :D ætla ekki allir að mæta þangað ?? Allavega er ég búin að kaupa miða ;)

 

Vildi bara koma nokkrum orðum að...

 

ps. myndirnar komnar! :D tékkit out!

og endilega láta vita ef þið vitið um einhverjar aðrar myndir af ballinu ;)

http://entertainment.webshots.com/album/558389859PqqoHZ

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.03.2007 23:24:30 / rannveig

Sunnudagsblogg..

Vá hundurinn minn hrýtur svo hátt að ég get ekki sofnað!
Æjj hann er nú samt svo endalaust sætur þetta krútt...:*
 
En ætlaði annars að benda á það að það eru komnar myndir af Casino/Mafia balli Verzló inná:
http://community.webshots.com/user/villingarnir10
og á
http://s178.photobucket.com/albums/w264/4-F_2007/
 
 
 
-Rannveig-
 
(Alveg ótrúlegt, fólk commentar meira þegar maður bloggar ekkert en þegar maður bloggar, haa??) 

» 5 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 16:41:15 / soffia

Letilíf

Hvað er eiginlega langt síðan að ég bloggaði síðast?

Ég man það ekki sjálf, það er svo langt síðan.
En jæja, það hlýtur að vera búið að vera svo mikið að gera hjá manni fyrst maður hefur ekki gefið sér tíma í að blogga, er það ekki ?
Nei reyndar ekki, hef nú bara verið að gera lítið sem ekkert síðustu vikur!
Lífið einkennist af skólanum, leti og vinnu um helgar... og kannski smá rúnti og partýum, hvort sem það er á Selfossi eða Reykjavík.

Annars er sitthvað í vændum hjá manni;

Þorrablót á Langó næsta laugardag
Sumarbústaður hjá bekknum helgina eftir það! :D
Síðan bara smáá skóli og svo páskafrí! Jibbí!
Það verður eflaust farið til Mývatnssveitar og gert eitthvað voooðalega skemmtilegt á meðan Rannveig verður í Flórída að skemmta sér þar! :)

 En jæja vildi bara láta heyra í mér !

Kv. Soffía sem er komin í sumarfíling! :)


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 20:27:59 / rannveig

Bloggerí!

Vikan rétt að byrja og strax farin að bíða eftir næstu helgi...

Já þessi skóli getur verið ansi þreytandi svona stundum, ekki alveg í læruskapinu þessa stundina...en þó reddast þetta alltaf eitthvernveginn á endanum...

Jæja ætla að koma með eina típíska dagbókarfærslu hérna...

Helgin var mjög róleg, vann eins og brjálæðingur í 2 daga. Þannig helgin hjá mér var eiginlega bara sunnudagurinn, enda nýtti ég hann vel. Við systurnar ásamt Eyrlu litlu fórum á kaffihús og gengum laugarveginn og svo bættist Helgi í hópinn. Um kvöldið hélt Bergrún svo handa okkur familíunni matarboð, dýrindis hangilæri í boði Helga..mmm svo gott! Svo eitthversstaðar þarna á milli átti að vera lært undir stærðfræðipróf, svo varð nú reyndar eitthvað lítið úr því..

Svo á mánudaginn var auðvitað byrjað daginn á Boot Camp, yndi synd að það sé aðeins vika eftir!, og svo farið út skólan. En varð nú víst ekki mikið úr því, því þegar ég kom þangað varð ég skyndilega veik og ældi svo á leiðinni heim og læti. En mér til mikilla ánægju var hann Helgi minn líka veikur þannig við gátum átt einn kósí dag saman...svo næs:)

En annars miðvikudagur á morgun, styttist óðum í helgina:P

Fann á netinu áðan mynd af okkur Soffíu síðan á busaballinu 2005 þeas fyrsta ballinu okkar í Verzló...ótrúlega gaman að sjá hvað maður breytist mikið..eða lítið:$

Ofur ferskar að vana
 
Over and out
 
Rannveig
 
 
Comment please...

» 3 hafa sagt sína skoðun

05.02.2007 21:56:57 / rannveig

Endalaust gaman!

Sæl...ekki kát??

En jæja það er víst nóg búið að gerast á nýja árinu...
  • Skólinn byrjaði auðvitað
  • Og jú vinnan fylgdi með
  • Lítið um djammið endalaus rólegheit, enda er maður alveg endurnærður..
  • Ég og Soffía byrjuðum í Boot Camp, rosa duglegar!
  • Sólveig og Soffía fóru á sveitt þorrablót í Mývatnssveit..
  • Selfossferðirnar hafa verið tíðar, enda ekkert nýtt svo sem!
  • Bíllinn minn bilaði
  • Gerðist flökkufari í viku þar sem foreldrar mínir stungu mín af til Kanarí, ættu að gera meira af því...farin að líka það líf, já að vera flökkufari er gott líf:P
  • jújú nýr sími gekk í garð, enda svo sem kominn tími til, og tók aðeins sólarhring fyrir hann að bila! (Varúð! símar eru drasl)
  • Ég og Helgi frestuðum ferðinni okkar enn einu sinni og nú er planið að fara í ágúst, og pant sól núna enga helvítis rigningu..
  • Og jújú svo var það Nemó, toppurinn á öllu!
Nemó dagurinn var alveg eins og ég bjóst við ef ekki aðeins betri, alveg æðislegur í alla staði..
Byrjaði með sundferð þar sem mætingin var nú ekki upp á marga fiska, en jújú aðalfólkið mætti auðvitað. Svo var brunað heim til Eydísar, étið kræsingar og spilað póker. Sýningin var svo á sýnum stað, góð skemmtun..bjóst samt við meiru.
Síðan byrjaði stressið..greiðslan, klæðnaðurinn, mála sig..en jújú þetta hófst.
Ég, Hulda og Soffía mættum svo á Hereford gallvaskar og aðeins ogguponsuseinar enda.. beauty takes time!
Svo var skellt þessum mat í sig og brunað í eftirpartýið og bættist við félagsskapur Hjalta og Sólveigar, ekki verra!
Og eftir það var bara endalaust gaman má segja..drykkjuleikur, dansað, drukkið, sungið, rabbað, rútan, sofið?, ballið og meira dansað!
Jæja vill allavega þakka öllum mínum yndislegu bekkjarfélögum fyrir frábæran dag, bíð spennt eftir sumarbústaðaferðinni!;P

Enn fleiri myndir eru komnar inná: community.webshots.com/user/villingarnir10, mæli eindregið með því að þið kíkið!

Hér kemur án efa mynd vikunnar
Skáladansinn!:P


Þakka fyrir mig

Rannveig


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.02.2007 22:08:30 / solveig

Myndir

Minni á myndir frá því á Nemó og fyrirpartý Janúarballs NFSu ;)

hér eru þær : http://community.webshots.com/user/villingarnir10

p.s. það styttist í blogg ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.01.2007 14:11:41 / soffia

Lífið?

Mig dreymdi frekar spes draum í nótt. Þannig var nú það að ég var nýkomin suður af Þorrablóti í Mývatnssveit (á sunnudegi) þegar ég fékk símtal frá afar skemmtilegri manneskju. Það var hún Bergþóra frá Baldursheimi sem var að athuga hvar ég væri stödd, og að spyrja hvort ég væri ekki að fara að mæta á "seinna Þorrablótið" sem ætti að vera svona meiri djammútgáfa af blótinu sem þá var deginum á undan. Ég sagði nú að ég hafði rétt að vera að keyra heim í hlað á Selfossi þó að mig langaði agalega mikið að koma aftur í sveitina! Sagði við hana að ég mundi gera mitt besta og svo lauk símtalinu.
Stuttu seinna kom það upp að önnur dóttir hans Hákons átti að mæta í flug kl 9 í Reykjavík. Í tilefni af því smaug ég mér með, án þess að láta nokkurn vita og ég var svo heppin að fá flug til Akureyrar kl 9. Hvernig ég komst frá Akureyri til Mývatnssveitar er bara aukaatriði en síðast þegar ég vissi af var ég mætt á þetta Þorrablót mér til mikillar gleði. Eitt leiddi af öðru en í endan var þetta búið að snúast upp í það að ég var með einhverri manneskju að borða jógurt upp í hlíð að fela mig fyrir einhverjum köllum.
En þrátt fyrir þetta vaknaði ég upp með tár í augunum meðvituð um það að ég væri ekkert á leiðinni norður og að þetta hafði bara verið draumur.

Það er alveg ótrúlegt hvað maður sækir alltaf jafn mikið í þessa sveit, í draumi eða ódraumi, þó svo maður hafi nánast ekkert lengur að sækja í þarna :$

NEMÓ (Nemendamót Verzlunarskóla Íslands) er á fimmtudag! Jibbí!
Þá verður djammað og djúsað en planið fyrir daginn er svona:

  • Sund í Garðarbæ
  • Morgunpartý í Garðarbæ
  • Nemó sýningin í Austurbæ
  • Heim að taka sig til
  • Mæta á Hereford Steikhús
  • Fyrirpartý
  • Ball með Sálinni og Páli Óskari!

Rannveig og ég í fyrirpartýi fyrir nemóballið í fyrra =)

Janúarball í FSu er á föstudag!

  • Mæting á Tryggvagötu 14 örugglega uppúr 7.
    Þá mæta hérna allt að 10 stelpum sem munu
    taka sig til fyrir ballið og hafa smá gleðskap
  • Fyrirpartý í Hlíðskjálf
  • Ball
  • Eftirpartý í Hlíðskjálf

Sólveig, Axel og Þórhildur á Janúarballinu í fyrra


Svo virðist sem að það sé mikið djamm framundan og við Rannveig erum svona að láta það krauma í okkur hvort við tökum ekki bara eina góða djammhelgi.
Annars í draumi langar mig náttúrulega að fara norður, á bara ekkert erindi þangað! ohh.. væææl

Látið í ykkur heyra!
-Soffía

P.s. Á Þorrablótinu var myndavélinni minni tímabundið stolið, og í hefndarskyni setti ég afrakstur þjófanna á netið! Það kemur ekki til greina að fjarlægja myndirnar og þið sem eigið getið bara tekið þetta til ykkar! HEHE

http://community.webshots.com/user/villingarnir9


» 12 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 17:20:03 / solveig

Kominn tími á blogg ?

Sólveig bloggar ;)

Ég biðst velvirðingar á því hversu mikil bloggleti hefur verið hér á bæ en það er bara svo brjálað að gera, skólinn og sonna!



En loksins er helgin liðin sem maður er búin að vera að bíða eftir frá því henni lauk fyrir ári síðan en það var Þorrablótshelgin sjálf í Mývatnssveit :D

Ferðalagið hófst á fimmtudagskvöldið, þar sem ég keyrði sjálf yfir heiðina til Rvk ! Loksins komin með bílpróf:D en þar beið ég eftir að Maggi væri búinn að vinna og lögðum við af stað í sveitina um 11 leitið og var Jói vinur Magga með í för. Á kjalarnesi tókum við svo Selmu uppí og keyrðum við norður um rauða nótt.
Föstudagurinn fór mestur í svefn, leti og drykkju. Ómar og María klikkuð ekki á partý fyrir líðinn en ég stoppaði nú stutt þar.



Laugardagurinn skall svo á og var byrjað uppúr hádegi að gera sig fínan fyrir sveitastrákana en lúkkið klikkaði ekki ;)
Kveldið byrjaði á dýrindis mat, súrmeti, hákarli og kæstum eggjum.. namm:D og svo byrjaði ballið sem var bara æði, það var dansað alveg útí eytt, þessir sveitastrákar klikka aldrei á dansgólfinu og var gjörsamlega rifist um mann ;) en ballið stóð til 5 og var nú maður bara sár yfir því að því væri að ljúka, engan vegin tilbúinn til þess að fara heim. Bara æði kvöld :D



Svo á sunnudaginn var brunað heim með sama pakkinu og kom ég heim um miðnætti í gærkveldi!


og svo eru komnar myndir hjá Elvu hans Antons ;* endilega kíkja á það líka:D

http://donastelpa.spaces.live.com/

Takk fyrir helgina allir saman ;**

Commenta takk:D



» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16
Dagsetning
15. mars 2010
Leitarbox

Síðast inni
Ég var síðast inni þann 19 nóvember